Handbolti

Sveinn: Maður var orðinn dofinn undir lokin

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Sveinn Þorgeirsson, til vinstri, í baráttunni í kvöld.
Sveinn Þorgeirsson, til vinstri, í baráttunni í kvöld. Mynd/Stefán
„Við gáfum allt í þetta og mér fannst allir leikmennirnir vera taka þátt í leiknum og skila sínu. Við skiptum mörkum vel á milli okkar og það mjög gott," sagði Sveinn Þorgeirsson, leikmaður Víkings, eftir tap gegn Gróttu í tvíframlengdum leik í kvöld.

„Það var viðbúið að þeir kæmu með einhverja bylgju til baka og því miður misstum við forskotið full hratt. En við héldum áfram að spila okkar leik og náðum að keyra þetta í tvær framlengingar."

Sveinn átti góðan leik í kvöld og skoraði sex mörk. Hann viðurkenndi að þreytan hafi farið að tala til sín í lokin.

„Það er útaf svona leikjum sem maður er í þessu, þetta var upp og niður og ég var búinn að fagna fjórum sinnum. Maður var orðinn dofinn undir lokin, það er ekki hægt að neita því," sagði Sveinn að lokum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×