Körfubolti

Haukakonur unnu Val örugglega í bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Heiðrún Hauksdóttir stóð sig vel með Haukum í dag.
Heiðrún Hauksdóttir stóð sig vel með Haukum í dag. Mynd/Valli

Haukakonur eru komnar í átta liða úrslit Subwaybikars kvenna í körfubolta eftir 68-53 sigur á Val á Ásvöllum í dag. Valsliðið byrjaði vel og var 20-15 yfir eftir fyrst leikhluta en staðan var 32-30 fyrir Hauka í hálfleik. Haukar urðu þar með annað liðið á eftir Keflavík til að tryggja sér sæti í pottinum í næstu umferð.

Heather Ezell skoraði 25 stig, tók 9 fráköst og gaf 6 stoðsendingar hjá Haukum og Heiðrún Hauksdóttir var með 18 stig en hún hitti úr 7 af 10 skotum sínum í leiknum. Hjá Val var Birna Eiríksdóttir með 16 stig og Hrund Jóhannsdóttir bætti við 14 stigum og 11 fráköstum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×