Fótbolti

Pressa á Nedved að halda áfram

Nordic Photos/Getty Images

Stuðningsmenn Juventus á Ítalíu hafa skorað á miðjumanninn Pavel Nedved að hætta við að hætta í sumar. Hinn 36 ára gamli Nedved ætlar að leggja skó sína á hilluna í sumar eftir glæstan feril.

Stuðningsmennirnir eru ekki þeir einu sem vilja halda í Nedved ef marka má ítalska fjölmiðla, því sagt er að forráðamenn Juventus vilji halda honum eitt ár í viðbót eftir fína leiktíð í vetur.

Nedved mun væntanlega missa sæti sitt í hendur Brasilíumannsins Diego sem keyptur var frá Werder Bremen í vikunni, en Tékkinn er í miklum metum hjá félaginu og ekki er útilokað að hann haldi áfram ef pressað verður á hann að fresta því að hætta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×