Handbolti

Frábær endurkoma hjá Ásgeiri Erni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ásgeir Örn Hallgrímsson.
Ásgeir Örn Hallgrímsson. Mynd/AP

Ásgeir Örn Hallgrímsson snéri aftur á handboltavöllinn í kvöld eftir margra mánaða fjarveru vegna meiðsla.

Hann byrjaði ekki á auðveldum leik því lið hans, GOG, var að mæta toppliði dönsku deildarinnar, Bjerringbro/Silkeborg.

Ásgeir stóð sig eins og hetja í leiknum og tryggði GOG dramatískan sigur með marki á lokasekúndu leiksins. Lokatölur 24-23 fyrir GOG.

Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar eru þar með jafnir Bjerringbro/Silkeborg á stigum og aðeins einu stigi á eftir toppliði Kolding.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×