Íslenski boltinn

KSÍ tilkynnir um vináttulandsleik gegn Lúxemborg

Ómar Þorgeirsson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. Mynd/Daníel

Knattspyrnusambönd Íslands og Lúxemborgar hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik 14. nóvember næstkomandi.

Um er að ræða alþjóðlegan leikdag og því getur landsliðsþjálfarinn Ólafur Jóhannesson stillt fram sínu sterkasta liði.

Leikið verður í Lúxemborg en þetta verður í sjöunda skipti sem þjóðirnar mætast. Í leikjunum sex hafa Íslendingar unnið fjórum sinnum en tvisvar hafa liðin skilið jöfn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×