Íslenski boltinn

Kristinn í stað Ásgeirs

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kristinn sést hér með Blikum síðasta sumar í leik gegn Keflavík.
Kristinn sést hér með Blikum síðasta sumar í leik gegn Keflavík. Mynd/Anton

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, hefur neyðst til þess að gera eina breytingu á landsliðshópnum sem mætir Færeyjum í Kórnum á sunnudag.

Blikinn Kristinn Jónsson kemur inn í stað FH-ingsins Ásgeirs Gunnars Ásgeirssonar sem er meiddur. Kristinn spilaði mikið með Blikum síðasta sumar og vakti verðskuldaða athygli fyrir vasklega framgöngu.

Leikurinn fer fram eins og áður segir í Kórnum á sunnudag og hefst klukkan 14.00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×