Sport

Soffía Arnþrúður kölluð inn í landsliðshópinn

Ómar Þorgeirsson skrifar
Soffía Arnþrúður Gunnarsson í leik með Stjörnunni gegn Val.
Soffía Arnþrúður Gunnarsson í leik með Stjörnunni gegn Val. Mynd/Stefán

Landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur ákveðið að bæta Soffíu Arnþrúði Gunnarsdóttur úr Stjörnunni inn í landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Frakklandi á morgun og Norður-Írlandi á miðvikudag í undankeppni HM 2011.

Soffía Arnþrúður hélt utan í dag og verður því klár í slaginn gegn Frökkum í Lyon á morgun.

Sara Björk Gunnarsdóttir gat ekki æft í dag vegna veikinda og óvíst er með þátttöku hennar í leiknum á morgun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×