Körfubolti

Haukar unnu toppslaginn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Daníel

Haukar unnu í kvöld sigur á Þór frá Þorlákshöfn, 92-68, í toppslag 1. deildar karla í körfubolta.

Steinar Aronsson skoraði flest stig Hauka í leiknum eða fjórtán talsins. Þeir Sævar Ingi Haraldsson og Helgi Björn Einarsson komu næstir með þrettán stig en alls skoruðu sex leikmenn Hauka tíu stig eða meira í leiknum.

Hjá Þór var Grétar Ingi Erlendsson stigahæstur með 20 stig. Baldur Þór Ragnarsson skoraði ellefu stig og Ari Gylfason níu.

Þá vann Skallagrímur sigur á Þór frá Akureyri í kvöld, 103-95, og kom sér þar með upp í annað sæti deildarinnar.

Haukar eru á toppnum með tólf stig en Skallagrímur og Þór, Þorlákshöfn koma næst með tíu stig hvort.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×