Íslenski boltinn

Selfyssingar unnu gamla þjálfarann í gær

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnlaugur Jónsson, fyrrum þjálfari Selfoss og núverandi þjálfari Vals.
Gunnlaugur Jónsson, fyrrum þjálfari Selfoss og núverandi þjálfari Vals. Mynd/Arnþór
Selfoss vann 2-0 sigur á Val í æfingaleik í Egilshöllinni en þetta var fyrsti sigur liðsins undir stjórn Guðmundar Benediktssonar og jafnframt fyrsti leikurinn á móti Gunnlaugi Jónssyni síðan að hann yfirgaf þjálfarastöðu liðsins til þess að fara að þjálfa Valsliðið.

Það voru þeir Ingi Rafn Ingibergsson og Hartmann Antonsson sem skoruðu mörk Selfyssinga í leiknum en þetta kom fram á fótbolta.net. KR vann 2-0 sigur á ÍR í æfingaleik á sama stað í gær en mörk liðsins skoruðu þeir Bjarni Guðjónsson og Gunnar Kristjánsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×