Fótbolti

Buffon hellti sér yfir félaga sína

Nordic Photos/Getty Images

Ítalskir fjölmiðlar greina frá því í dag að landsliðsmarkvörðurinn Gianluigi Buffon hafi hellt úr skálum reiði sinnar yfir liðsfélaga sína í hálfleik í gær þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við slakt lið Lecce í ítölsku A-deildinni.

Juventus var undir 1-0 á heimavelli í leiknum og þó gamli refurinn Pavel Nedved hafi skorað tvö mörk í síðari hálfleik og komið Juve yfir, dugði það ekki því fallkandídatarnir í Lecce jöfnuðu leikinn í blálokin.

Fyrir vikið hefur Juventus ekki unnið í síðustu fimm leikjum sínum og er komið fjórum stigum á eftir AC Milan sem vermir annað sætið í deildinni á eftir Inter.

Buffon á að hafa öskrað á félaga sína og spurt þá hvort þeir gerðu sér grein fyrir því að þeir væru að spila eins og aumingjar.

Vincenzo Iaquinta hefur staðfest reiðilestur Buffon. "Hann var mjög reiður eins og við allir. Við horfðum hver á annan og vorum sammála um að við gætum ekki haldið áfram að spila svona illa," sagði framherjinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×