Fótbolti

Vieri kynnir nýja smokka

Vieri hefur víða farið á löngum ferli
Vieri hefur víða farið á löngum ferli Nordic Photos/Getty Images

Ítalski markahrókurinn Christian Vieri hefur verið samningslaus síðan hann fékk sig lausan hjá Atalanta í síðasta mánuði, en hann hefur nóg annað að gera en að spila fótbolta.

Vieri hefur reyndar verið að reyna fyrir sér í Brasilíu en þar tókst honum ekki að landa sér samningi að sögn ítalskra fjölmiðla.

Vieri er lipur viðskiptamaður og fyrir nokkrum árum stofnaði hann fyrirtæki í tískuiðnaðinum ásamt Paolo Maldini hjá Milan sem kallast Sweet Years.

Þeir félagar eru nú að setja á markað nýja línu af smokkum sem kallast Akuel Blues Sweet Years Limited Edition.

Smelltu hér til að fara á heimasíðu Sweet Years.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×