Fótbolti

Arena útilokar ekki að Beckham fari til Milan

Bruce Arena, þjálfari LA Galaxy í Bandaríkjunum, virðist vera á góðri leið með að sætta sig við að David Beckham muni skipta yfir til AC Milan á Ítalíu.

Beckham hefur sjálfur sagt að hann óski þess að ganga varanlega í raðir ítalska liðsins og það virðist hafa breytt skoðun þjálfarans, sem fyrir stuttu útilokaði að enski landsliðsmaðurinn færi frá Galaxy.

"Við tökum því sem að höndum ber," sagði Arena í viðtali á heimasíðu félagsins.

"Hvað sem kemur út úr þessum viðræðum verður félaginu fyrir bestu. Þetta eru samningaviðræður og við verðum að sjá hvað kemur út úr þeim rétt eins og öðrum viðræðum. Við setjum þarfir félagsins í forgrunn og ég vona bara að þetta mál verði ekki til þess að trufla undirbúning liðsins," sagði Arena.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×