Íslenski boltinn

Tíu KR-ingar slógu Víðismenn út úr bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Björgólfur Takefusa skoraði eina mark fyrri hálfleiks í Garðinum.
Björgólfur Takefusa skoraði eina mark fyrri hálfleiks í Garðinum. Mynd/Stefán

Tíu KR-ingar náðu að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum VISA-bikars karla með því að vinna 2-0 sigur á Víði í Garði í kvöld. Björgólfur Takefusa skoraði fyrramarkið á 42. mínútu en Guðmundur Pétursson innsiglaði sigurinn í uppbótartíma. KR-ingar léku manni færri næstum því allan seinni hálfleikinn.

Björgólfur Takefusa skoraði eftir varnarmistök Víðismanna en áður hafði hann skorað rangstöðumark og látið bjarga frá sér á marklínu. Varamaðurinn Guðmundur Pétursson skoraði seinni markið í blálok leiksins.

Stefán Logi Magnússon fékk rauða spjaldið á annarri mínútu seinni hálfleiks þegar hann felldi Atla Rúnar Hólmbergsson sem var sloppinn einn í gegn. Hinn ungi Atli Jónasson tók stöðu Stefáns Loga í markinu og Logi Ólafsson tók Guðmund Benediktsson út í hans stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×