Fótbolti

Beckham vill vera áfram hjá Milan

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
David Beckham, leikmaður AC Milan.
David Beckham, leikmaður AC Milan. Nordic Photos / AFP
David Beckham viðurkenndi í kvöld að hann vilji hætta hjá LA Galaxy og fara til AC Milan þar sem hann er í láni nú.

Þetta sagði hann eftir æfingaleik sinna manna í AC Milan gegn Rangers í Skotlandi í kvöld.

„Ég hef látið þá löngun mína í ljós að ég vil vera um kyrrt í Mílanó og vonandi geta félögin komist að einhverju samkomulagi," sagði Beckham.

„Mitt aðalmarkmið er að vera áfram hjá þessu félagi. Ég hef notið þess að spila hér þar sem knattspyrnan er í hæsta gæðaflokki. Ég tel að það myndi gefa mér meiri möguleika á því að spila í heimsmeistarakeppninni á næsta ári."

„Ég hef ekki rætt við neinn hjá Galaxy um þetta en einhver af mínum fulltrúum hefur gert það. Þetta er algerlega undir þeim komið og vonandi tekst aðilum að komast að samkomulagi."

Beckham gekk til liðs við Galaxy árið 2007 og samdi þá til fimm ára.

„Ég hef notið þess að spila með Milan. Ég vissi að ég myndi njóta þess en ekki í sama mæli og ég hef gert hingað til."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×