Íslenski boltinn

Hópurinn klár fyrir leikina gegn Frökkum og Norður-Írum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari tilkynnti nú í hádeginu hvaða 18 leikmenn væru í landsliðshópnum sem mætir Frökkum og Norður-Írum.

Ísland mætir Frökkum ytra á laugardag og Norður-Írum á miðvikudag, einnig ytra. Leikirnir eru liður í undankeppni HM 2011.

Fátt kom á óvart í vali Sigurðar og enginn nýliði í hópnum. Allir sterkustu leikmenn landsliðsins eru með fyrir utan Guðrúnu Sóleyju Gunnarsdóttur sem er meidd.

Hópurinn:

Guðbjörg Gunnarsdóttir - Djurgarden

Þóra B. Helgadóttir - Kolbotn

Ásta Árnadóttir - Tyresö

Erna B. Sigurðardóttir - Breiðablik

Katrín Jónsdóttir - Valur

Ólína G. Viðarsdóttir - Örebro

Sif Atladóttir - Valur

Edda Garðarsdóttir - Örebro

Erla Steina Arnardóttir - Kristianstad

Hólmfríður Magnúsdóttir - Kristianstad

Katrín Ómarsdóttir - KR

Sara Björk Gunnarsdóttir - Breiðablik

Dóra María Lárusdóttir - Valur

Fanndís Friðriksdóttir - Breiðablik

Guðný B. Óðinsdóttir - Kristianstad

Kristín Ýr Bjarnadóttir - Valur

Margrét Lára Viðarsdóttir - Kristianstad

Rakel Hönnudóttir - Þór




Fleiri fréttir

Sjá meira


×