Fótbolti

Mourinho kærður fyrir ummæli sín

Nordic Photos/Getty Images

Ítalska knattspyrnusambandið hefur kært Jose Mourinho þjálfara Inter fyrir ummæli hans í garð dómara eftir leik Inter og Roma um síðustu helgi.

Mourinho sagði að lið Juventus hefði hagnast á mistökum dómara í leikjum í deildinni í vetur. Ekki er ljóst hvort Portúgalinn gæti átt yfir höfði sér leikbann eða sekt vegna þessa.

Þá hefur miðjumaðurinn Daniele De Rossi hjá Roma einnig verið kærður fyrir svipaða framkomu, en hann sakaði Mario Balotelli um leikaraskap í umræddum leik sem endaði með 3-3 jafntefli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×