Fótbolti

Trezeguet neitar því að vilja fara frá Juventus

Ómar Þorgeirsson skrifar
David Trezeguet.
David Trezeguet. Nordic photos/AFP

Framherjinn David Trezeguet blæs á sögusagnir um að hann sé á förum frá Juventus en hann hefur verið sterklega orðaður við AC Milan í sumar.

Frakkinn kveðst ánægður hjá Juventus og kannast ekkert við að hann hafi beðið um að vera settur á sölulista hjá ítalska félaginu.

„Hefur Secco [stjórnarformaður Juventus] sagt ykkur að ég hafi viljað skipta um treyju? Það væri skrýtið því við höfum aldrei rætt um þau mál. Ég hef notið þess að æfa með Juventus undanfarið og við sjáum til kvað knattspyrnustjórinn vill gera. Þetta kemur allt í ljós," segir Trezeguet í samtali við Corriere dello Sport.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×