Handbolti

Mikilvægur sigur hjá Guif

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kristján Andrésson, þjálfari Guif.
Kristján Andrésson, þjálfari Guif. Mynd/Tommy Holl

Guif vann í kvöld mikilvægan sigur í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta er liðið vann Skövde á heimavelli, 36-26.

Kristján Andrésson er þjálfari Guif en yngri bróðir hans, Haukur, skoraði eitt marka liðsins í kvöld.

Þá skoraði Gunnar Steinn Jónsson þrjú mörk fyrir Drott sem gerði jafntefli, 26-26, við Lindesberg á útivelli.

Einar Guðmundsson skoraði tvö mörk fyrir Kristianstad sem tapaði fyrir Ystad á útivelli, 33-29.

Drott er í sjöunda sæti deildarinnar með þrettán stig, fimm stigum á eftir topplliðum Alingsås og Lugi. Kiristianstad er í tíunda sæti með ellefu stig en Guif er í því ellefta sæti með tíu stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×