Fótbolti

Adriano er enginn dópisti

Nordic Photos/Getty Images

Gilmar Rinaldi, umboðsmaður framherjans Adriano hjá Inter Milan, vísar á bug ásökunum um óheilbrigt líferni skjólstæðings síns.

Adriano hefur einstakt lag á því að koma sér í fréttirnar af einkennilegum ástæðum og nú síðast sneri hann ekki aftur til Ítalíu eftir að hafa verið í heimalandi sínu Brasilíu í landsleikjahlénu á dögunum.

Brasilísku blöðin hafa ekki sparað stóru orðin og tengja meinta erfiðleika hans við meinta eiturlyfjaneyslu. Umboðsmaðurinn vísar þessu á bug.

"Adriano á við persónulegt vandamál að stríða og það kemur eiturlyfjum ekkert við. Hann hefur aldrei notað eiturlyf. Adriano er að ganga í gegn um erfiða tíma, ég get ekki tjáð mig meira um það," sagði umboðsmaðurinn í samtali við globoesporte.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×