Handbolti

Annar íslenskur sigur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Harpa Sif Eyjólfsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, skoraði átta mörk fyrir Ísland í kvöld.
Harpa Sif Eyjólfsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, skoraði átta mörk fyrir Ísland í kvöld. Mynd/Arnþór

Ísland vann tveggja marka sigur á Sviss, 31-29, í æfingalandsleik í handbolta kvenna á Selfossi í kvöld.

Þetta var í annað sinn á jafn mörgum dögum sem liðin mætast en þriðji leikur liðanna verður í íþróttahúsinu í Austurbergi annað kvöld. Í gær vann Ísland einnig tveggja marka sigur á Sviss.

Harpa Sif Eyjólfsdóttir skoraði átta mörk fyrir Ísland í kvöld og Hrafnhildur Skúladóttir sjö. Íris Ásta Pétursdóttir skoraði fimm mörk en alls komust ellefu leikmenn liðsins á blað í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×