Fótbolti

ÍA, Þór og ÍR tryggðu sér þrjú stig hvert

Jón Vilhelm Ákason, Skagamaður.
Jón Vilhelm Ákason, Skagamaður. Fréttablaðið/Daníel
ÍA, Þór og ÍR unnu sína leiki í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld, líkt og Selfyssingar sem komust þar með upp í Pepsi-deildina.

ÍA vann Víking 2-0 á útivelli þar sem Ragnar Leósson skoraði bæði mörkin og ÍR vann KA á heimavelli með sömu markatölu. Kristján Ari Halldórsson og Eyþór Guðnason skoruðu mörk ÍR.

Þórsarar unnu góðan sigur á Fjarðabyggð með einu marki gegn engu. Jóhann Helgason skoraði markið.

Smelltu hér til að sjá stöðuna í 1. deild karla af heimasíðu KSÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×