Fótbolti

Zlatan hneykslaður á frammistöðu AC Milan

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Zlatan fagnar sínu fyrsta marki með Barcelona.
Zlatan fagnar sínu fyrsta marki með Barcelona. Nordic Photos / AFP

Zlatan Ibrahimovic fannst ekki mikið til frammistöðu AC Milan koma er liðið tapaði, 4-0, fyrir hans gamla félagi, Inter, á dögunum.

Zlatan kom til Barcelona frá Inter í sumar í skiptum fyrir Samuel Eto'o.

Þó virtist ekki að Inter hafi saknað hans þar sem liðið átti í litlum vandræðum með erkifjendur sínar í leiknum.

„Ég sá mína gömlu liðsfélagana í borgarslagnum," sagði Zlatan í samtali við ítalska fjölmiðla. „Það kom mér eiginlega mest á óvart að sjá Milan í leiknum. Það er ótrúlegt að sjá í hvaða stöðu liðið er."

Jose Mourinho, stjóri Inter, var svo á leik Barca gegn Sporting Gijon á mánudagskvöldið þar sem Zlatan skoraði eitt marka sinna manna í 3-0 sigri. Í síðustu viku drógust Inter og Barcelona saman í riðil í Meistaradeild Evrópu.

„Ég veit að hann var á Nou Camp til að fylgjast með okkur. Hann mun leggja mikla vinnu í að skoða hvernig hann getur stöðvað okkur."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×