Handbolti

Freyr og Pekarskyte best

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Freyr Brynjarsson og Ramune Pekarskyte með viðurkenningar sínar í dag.
Freyr Brynjarsson og Ramune Pekarskyte með viðurkenningar sínar í dag. Mynd/E. Stefán

Freyr Brynjarsson og Ramune Pekarskyte, leikmenn Hauka, voru kjörin bestu leikmenn 8.-14. umferða N1-deildar karla og kvenna.

Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, var valinn besti þjálfarinn í karlaflokki og Atli Hilmarsson hjá Stjörnunni besti þjálfarinn í kvennaflokki.

Þá fékk FH verðlaun fyrir bestu umgjörðina hjá körlunum en Valur hjá konunum.

Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson fengu viðurkenningu sem bestu dómararnir.

Efri röð frá vinstri: Aron, Rúnar, Sigurbergur, Birkir Ívar og fulltrúi N1. Neðri röð: Arnór, Freyr og Haraldur. Á myndina vantar Valdimar Þórsson.Mynd/E. Stefán

Úrvalslið 8.-14. umferða í N1-deild karla:

Markvörður: Birkir Ívar Guðmundsson, Haukum.

Línumaður: Haraldur Þorvarðarson, Fram.

Vinstra horn: Freyr Brynjarsson, Haukum.

Hægra horn: Arnór Þór Gunnarsson, Val.

Vinstri skytta: Sigurbergur Sveinsson, Haukum.

Hægri skytta: Rúnar Kárason, Fram.

Miðjumaður: Valdimar Þórsson, HK.

Efri röð frá vinstri: Atli, Florentina, Nína Björk, Ramune, Alina. Neðri röð: Ragnhildur Rósa, Dagný og Hanna G.Mynd/E. Stefán

Úrvalslið 8.-14. umferða í N1-deild kvenna:

Markvörður: Florentina Stanciu, Stjörnunni.

Línumaður: Nína Björk Arnfinnsdóttir, Haukum.

Vinstra horn: Dagný Skúladóttir, Val.

Hægra horn: Hanna G. Stefánsdóttir, Haukum.

Vinstri skytta: Ramune Pekarskyte, Haukum.

Hægri skytta: Alina Petrache, Stjörnunni.

Miðjumaður: Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir, FH.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×