Körfubolti

Hlynur í landsliðið í stað Fannars

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hlynur Bæringsson.
Hlynur Bæringsson. Mynd/Valli

Hlynur Bæringsson mun spila með íslenska landsliðinu í körfubolta gegn Austurríki á morgun í stað Fannars Ólafssonar sem er veikur. Sigurður Ingimundarson landsliðsþjálfari staðfesti þetta í samtali við Vísi í dag.

Fannar fór ekki með landsliðinu til Svartfjallalands nú í vikunni en Ísland leikur sinn loka leik í riðlakeppni B-deild Evrópumeistaramótsins á morgun.

Fannar lék vel í sigurleikjunum gegn Danmörku og Hollandi en það er ljóst að hann verður ekki með á morgun vegna veikindanna.

4-5 aðrir leikmenn, þeirra á meðal Jón Arnór Stefánsson, voru slappir í vikunni en spiluðu samt gegn Svartfjallalandi og verða einnig með á morgun.

Leikurinn við Austurríki fer fram í Smáranum á morgun klukkan 16.30. Á sama stað klukkan 14.00 fer fram leikur Íslands og Svartfjallalands í B-deild EM kvenna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×