Fótbolti

Mourinho verður áfram hjá Inter

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jose Mourinho, stjóri Inter.
Jose Mourinho, stjóri Inter. Nordic Photos / AFP

Jorge Mendes, umboðsmaður Jose Mourinho, segir að hann verði áfram hjá ítalska úrvalsdeildarliðinu Inter sama hvað tautar og raular.

Inter er á góðri leið með að tryggja sér ítalska meistaratitilinn en liðið féll þó úr leik í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Mourinho hefur þar að auki átt í stríði við ítalska fjölmiðlamenn.

„Jose verður áfram hjá Inter, það er alveg öruggt," sagði Mendes í samtali við Gazzetta dello Sport á Ítalíu. „Hann er með samning og er búinn að koma sér vel fyrir. Hann er ánægður og vill vinna Meistaradeildina eins fljótt og auðið er."

„Allir leikmenn liðsins eru ánægðir með hann og þeir geta dæmt fljótt um það hvort að þjálfari sé góður eða ekki."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×