Fótbolti

Þjálfari Sampdoria lætur Mourinho heyra það

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mourinho var ekki upplitsdjarfur þegar Inter datt úr leik í ítalska bikarnum.
Mourinho var ekki upplitsdjarfur þegar Inter datt úr leik í ítalska bikarnum. Nordic Photos/Getty Images

Sampdoria gerði sér lítið fyrir og sló Inter út úr ítalska bikarnum í gær. Eftir leikinn ásakaði Jose Mourinho, þjálfari Inter, lið Sampdoria um að spila „and-fótbolta". Svo leiðinlegan fótbolta fannst honum liðið spila.

Walter Mazzari, þjálfari Sampdoria, var ekki par sáttur við þessi ummæli Portúgalans og svaraði honum fullum hálsi.

„Sem betur fer sáu milljónir manna leikinn í sjónvarpi því hann gefur upp kolranga mynd af því sem fór fram. Ég veit ekki af hverju Mourinho segir svona. Kannski vill hann draga athyglina frá frammistöðu síns liðs," sagði Mazzari ákveðinn.

„Hann hefði betur hrósað okkur fyrir frábæra frammistöðu í báðum leikjunum. Allir sem sáu leikinn vita að við reyndum að spila fótbolta á meðan leikmenn Inter ráfuðu hugmyndalausir um völlinn," sagði Mazzari og bíða menn nú spenntir eftir svari frá Mourinho.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×