Fótbolti

Batista tryggði Roma sigur á Sampdoria

AFP

Brasilíumaðurinn Julio Baptista lét til sín taka í fjarveru þeirra Francesco Totti og Mirko Vucinic í kvöld þegar hann skoraði eitt mark í hvorum hálfleik í 2-0 sigri Roma á Sampdoria í ítölsku A-deildinni. Roma fór í áttunda sætið með sigrinum.

Þá var einn leikur í bikarkeppninni á Ítalíu þar sem Juventus vann auðveldan 3-0 sigur á Catania með mörkum frá Marcionni, Giovinco og Del Piero.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×