Fótbolti

Buffon búinn að ná sér

NordicPhotos/GettyImages

Ítalski landsliðsmarkvörðurinn Gianluigi Buffon hjá Juventus hefur nú náð sér af meiðslum sem hafa haldið honum frá keppni síðustu þrjá mánuði.

Buffon hefur verið frá vegna rifins vöðva í fæti en er nú búinn að ná sér að fullu. Þetta eru ekki einu góðu fréttirnar af "Gömlu Konunni" því fleiri leikmenn eru að snúa aftur eftir meiðsli.

"Buffon, Cristiano Zanetti, Christian Poulsen og Hasan Salihamidzic hafa allir náð sér að fullu, Thiago er við það að ná sér og þá er David Trezeguet á undan áætlun í bata sínum," sagði Claudio Ranieri þjálfari Juventus á blaðamannafundi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×