Fótbolti

Óvíst að Adriano fari frá Inter

Adriano
Adriano NordicPhotos/GettyImages

Framtíð brasilíska sóknarmannsins Adriano hjá Inter hefur þótt nokkuð ótrygg á síðustu vikum en þjálfari hans Jose Mourinho virðist ekki vera búinn að gefast upp á honum enn.

Mourinho lét í það skína í síðasta mánuði að Adriano ætti sér ekki framtíð hjá liðinu vegna agavandamála, en nú virðist hann eitthvað vera að draga í land.

"Ég hugsa að hann verði áfram hjá okkur," sagði Mourinho í samtali við Sky. "Ég hef áður sagt að ég vilji helst halda sama mannskap út leiktíðina. Adriano er að vinna vel núna og fær að spila einn af þremur næstu leikjum okkar ef allt gengur upp," sagði Portúgalinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×