Fótbolti

Ibrahimovic: Ánægður að vera áfram hjá Inter

Ómar Þorgeirsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic. Nordic photos/Getty images

Sóknarmaðurinn Zlatan Ibrahimovic hjá Inter svaraði spurningum blaðamanna í dag á kynningarfundi fyrir komandi tímabil sem haldinn var á æfingarsvæði félagsins í Appiano í útjaðri Mílanóborgar.

Leikmaðurinn hefur sterklega verið orðaður við að yfirgefa herbúðir Inter í sumar og Manchester United og Barcelona á meðal þeirra félaga sem eru orðuð við Svíann.

„Ég er bara mjög ánægður með að vera hérna í Appiano. Ég hef vissulega fylgst með dagblöðunum síðustu vikur en hef ekki séð neitt áhugavert eða neitt sem eitthvað vit er í. Það sem gerist, gerist bara en ég er ánægður með að vera hérna. Ég er jafn ánægður núna hjá Inter og daginn sem ég skrifaði undir samning við félagið," segir Ibrahimovic.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×