Fótbolti

Lazio vann Juventus heima

Elvar Geir Magnússon skrifar
Í ítalska bikarnum er leikið heima og að heiman í undanúrslitum. Það er því allt opið fyrir seinni viðureign Juventus og Lazio.
Í ítalska bikarnum er leikið heima og að heiman í undanúrslitum. Það er því allt opið fyrir seinni viðureign Juventus og Lazio.

Lazio vann Juventus 2-1 í fyrri leik liðanna í undanúrslitum ítölsku bikarkeppninnar. Juventus komst yfir í leiknum en Lazio gafst ekki upp og náði að innbyrða sigur.

Það er þó allt opið fyrir seinni viðureignina sem fram fer í Tórínó þann 22. apríl. Marco Marchionne kom Juve yfir en Goran Pandev og Tommaso Rocchi svöruðu fyrir Lazio í leiknum í kvöld.

Í hinni undanúrslitaviðureigninni eigast við Inter og Sampdoria. Fyrri leikur þeirra liða verður á miðvikudagskvöld.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×