Íslenski boltinn

Dóra meidd - Kristín Ýr kölluð inn í landsliðshópinn

Ómar Þorgeirsson skrifar
Kristín Ýr Bjarnadóttir í leik með Val.
Kristín Ýr Bjarnadóttir í leik með Val. Mynd/Stefán

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur gert eina breytingu á landsliðshóp sínum fyrir leikinn gegn Eistlandi í undankeppni HM 2011.

Dóra Stefánsdóttir getur ekki gefið kost á sér vegna meiðsla og því hefur Kristín Ýr Bjarnadóttir úr Val verið valin í hennar stað.

Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli á næstkomandi fimmtudag og hefst kl. 20.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×