Fótbolti

Napoli lagði Inter

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jose Mourinho, þjálfari Inter.
Jose Mourinho, þjálfari Inter. Nordic Photos/Getty Images

Topplið Inter í ítalska boltanum tapaði óvænt fyrir Napoli á útivelli í kvöld, 1-0. Það var Marcelo Zalayeta sem skoraði eina mark leiksins.

Inter er þrátt fyrir tapið enn með sjö stiga forskot á toppnum og fátt virðist geta komið í veg fyrir sigur liðsins í deildinni. AC Milan er í öðru sæti og Juventus í því þriðja.

Napoli komst í tólfta sæti deildarinnar með sigrinum góða í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×