Fótbolti

Árni Gautur er meiddur - Hannes Þór inn í hópinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hannes Þór Halldórsson, markvörður úr Fram er kominn inn í landsliðshópinn.
Hannes Þór Halldórsson, markvörður úr Fram er kominn inn í landsliðshópinn. Mynd/Valli

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á hóp sínum fyrir vináttulandsleikinn gegn Georgíu á Laugardalsvellinum á morgun.

Hannes Þór Halldórsson, markvörður úr Fram, kemur inn í hópinn í stað Árna Gauts Arasonar sem er meiddur. Ólafur hefur þegar þurft að kalla inn fjóra leikmenn í hópinn frá því að leiknum gegn Norðmönnum lauk á laugardaginn.

Hinir þrír sem voru komnir inn í hópinn voru Baldur Sigurðsson úr KR, Bjarni Ólafur Eiríksson úr Val og Davíð Þór Viðarsson úr FH.

Leikurinn við Georgíu fer fram á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 9. september og hefst kl. 19:30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×