Íslenski boltinn

Sautján ára strákarnir unnu Finna og spila um þriðja sætið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnar Guðmundsson er þjálfari 17 ára landsliðsins.
Gunnar Guðmundsson er þjálfari 17 ára landsliðsins. Mynd/Vilhelm

Strákarnir í 17 ára landsliðinu unnu góðan 4-1 sigur á Finnum í lokaumferð riðakeppni opna Norðurlandamótsins sem fram fer er í Þrándheimi. Öll mörk leiksins komu í síðari hálfleik.

Kristján Gauti Emilsson skoraði tvö mörk í leiknum og þeir Emil Pálsson og Arnar Bragi Bergsson skoruðu hin mörkin. Íslensku strákarnir unnu 2-0 sigur á Svíum í gær.

Íslenska liðið hafnaði í öðru sæti riðilsins á eftir Skotum sem gerðu markalaust jafntefli við Svía í dag. Íslendingar leika því um þriðja sætið á mótinu á sunnudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×