Fótbolti

Hörður: Ég er sleginn yfir ummælum Eiðs Smára

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hörður Magnússon.
Hörður Magnússon.

„Ég er steinhissa í raun og veru að hann skuli tjá sig með þessum hætti. Ég er svolítið sleginn yfir þessu," sagði Hörður Magnússon íþróttafréttamaður við útvarpsþáttinn fótbolti.net á X-inu 977 áðan en Eiður lætur Hörð heyra það í viðtali í Fréttablaðinu í dag. Má lesa það viðtal hér á Vísi.

„Ég var ekki að kalla eftir einu né neinu. Guðmundur Hilmarsson, íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu, hringdi í mig og bað mig um álit. Ég gaf það en var ekki að kalla sjálfur eftir neinni umfjöllun um Eið," sagði Hörður.

Hann skilur ekki að Eiður sé svona sár yfir því að íþróttafréttamaður sé að gagnrýna hann.

„Ef að menn sem eru íþróttafréttamenn geta ekki fjallað um frammistöðu knattspyrnumanna, hverjir eiga þá að gera það? Ég meina eiga stjórnmálamenn að fjalla um pólitískar fréttir? Ég veit ekki alveg hvaðan hann er að koma og hvort hann hreinlega las mína gagnrýni sem var frekar uppbyggileg. Ég hef lýst óteljandi leikjum með Eiði og hrósað honum mikið í gegnum tíðina og það ekki að ósekju," sagði Hörður.

Athygli vekur að Eiður ákveður að beina spjótum sínum meðal annars að holdarfari Harðar og gerir lítið úr ferli hans í viðtalinu.

„Ég skil það ekki alveg. Ég var nú ekkert að tjá mig um hvernig hann lítur út. Ég hélt mig við málefnalega gagnrýni. Hann ákveður að gera þetta eitthvað persónulegt. Hann verður að meta það sjálfur hvort hann gekk of langt. Ég skil annars ekki af hverju hann er svona sár út í mig því hann segir sjálfur í viðtalinu í Fréttablaðinu að hann hafi ekki fundið sig," sagði Hörður sem var sleginn eins og áður kom fram.

„Eiður er greinilega viðkvæmur. Ég hélt kannski að hann myndi svara þessari gagnrýni á vellinum og gefa mér langt nef þar. Þannig hefur hann margoft svarað gagnrýni. Ég vona að hann geri það skori þrennu í landsleiknum í dag," sagði Hörður í útvarpsþættinum fótbolti.net.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×