Íslenski boltinn

Haukarnir aftur í 2. sætið og minnkuðu forskot Selfoss í fjögur stig

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hilmar Trausti Arnarsson, fyrirliði Hauka.
Hilmar Trausti Arnarsson, fyrirliði Hauka. Mynd/Valli

Haukar endurheimtu annað sætið í 1. deild karla í fótbolta með 3-1 sigri á Ólafsvíkur-Víkingum á Ásvöllum í dag.

Haukar eru þar með aðeins fjórum stigum á eftir toppliði Selfoss sem tapaði fyrir HK í 15. umferðinni. HK er nú tveimur stigum á eftir Haukum og skaut upp í 2. sætið með sigrinum á Selfossi.

Garðar Ingvar Geirsson skoraði tvö mörk og kom Haukum í 2-0. Jónas Bjarnason skoraði síðan þriðja markið áður en Brynjar Gauti Guðjónsson minnkaði muninn fyrir Víking í lok leiksins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×