Íslenski boltinn

Norðmenn fá aðstoð frá íslenskum dómara í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Örvar Sær Gíslason.
Örvar Sær Gíslason. Mynd/Heimasíða KSÍ

Örvar Sær Gíslason, dómari, verður í eldlínunni í dag þegar hann dæmir leik Hönefoss og Kongsvinger í næst efstu deild í Noregi. Um sannkallaðan toppslag er að ræða því að þetta eru félögin sem sitja sem stendur í öðru og þriðja sæti deildarinnar og í mikilli baráttu um að komast upp í efstu deild. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Knattspyrnusambandsins.

Leikurinn verður í beinni útsendingu á norsku sjónvarpsstöðinni NRK2 en sú sjónvarpsstöð er mörgum aðgengileg hér á landi. Leikurinn hefst kl. 17.35 að íslenskum tíma.

Leikurinn er hluti af norrænum dómaraskiptum en það verkefni hefur verið síðastliðinn ár á milli knattspyrnusambanda á Norðurlöndunum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×