Íslenski boltinn

Valur og Breiðablik í úrslitaleik VISA-bikars kvenna

Rakel Logadóttir skoraði tvö mörk í dag.
Rakel Logadóttir skoraði tvö mörk í dag. Mynd/Stefán

Valur og Breiðablik tryggðu sér í dag sæti í bikarúrslitaleik VISA-bikars kvenna eftir sigra á heimavelli í undanúrslitaleikjunum.

Valur vann 5-0 sigur á Stjörnunni á Vodafone-vellinum. Rakel Logadóttir skoraði tvö mörk og þær Katrín Jónsdóttir, Kristín Ýr Bjarnadóttir og Dóra María Lárusdóttir skoruðu eitt mark hver.

Erna Björk Sigurðardóttir, fyrirliði Breiðabliks, tryggði Blikum 2-1 sigur á Fylki í framlengingu með sínu öðru marki í leiknum. Anna Björg Björnsdóttir jafnaði leikinn fyrir Fylki og tryggði Árbæjarliðinu framlengingu.

Þetta verður í áttunda sinn sem Valur og Breiðablik leika til úrslita í bikarkeppni kvenna en þau mættust síðast árið 2006.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×