Íslenski boltinn

Tveir nýir íslenskir FIFA-dómarar staðfestir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þóroddur Hjaltalín.
Þóroddur Hjaltalín. Mynd/Daníel
Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur staðfest íslenskar tilnefningar á FIFA-lista yfir dómara og aðstoðardómara fyrir árið 2010. Þorvaldur Árnason og Þóroddur Hjaltalín eru báðir orðnir FIFA-dómarar í fyrsta sinn og þá er Andri Vigfússon fyrstur íslenskra Futsal dómara á alþjóðlegan lista.

Þeir Þorvaldur og Þóroddur taka sæti Garðars Arnar Hinrikssonar og Jóhannesar Valgeirssonar á listanum en þeir voru báðir á sínu öðru ári í úrvalsdeildinni í sumar.

FIFA-dómarar 2010

Kristinn Jakobsson

Magnús Þórisson

Þorvaldur Árnason

Þóroddur Hjaltalín

FIFA-aðstoðardómarar (karlar)

Áskell Þór Gíslason

Frosti Viðar Gunnarsson

Gunnar Sverrir Gunnarsson

Jóhann Gunnar Guðmundsson

Oddbergur Eiríksson

Ólafur Ingvar Guðfinnsson

Sigurður Óli Þorleifsson

FIFA-Aðstoðardómari (konur)

Bryndís Sigurðardóttir

Futsaldómari

Andri Vigfússon






Fleiri fréttir

Sjá meira


×