Fótbolti

Mourinho ætlar að reyna að stela Obi Mikel

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Obi Mikel í leik gegn Everton.
Obi Mikel í leik gegn Everton. Nordic Photos/getty Images

Fjölmiðlar greina frá því dag að Jose Mourinho, þjálfari Inter, sé að undirbúa 15 milljón punda tilboð í John Obi Mikel, miðjumann Chelsea, í sumar.

Obi Mikel hefur oftar en ekki verið varaskeifa fyrir Michael Essien og Mourinho er talinn vera klár með fimm ára, freistandi samning fyrir Nígeríumanninn.

Mourinho veit allt um styrkleika miðjumannsins en það var hann sem fékk leikmanninn til Chelsea á sínum tíma eftir að hann hafði í raun skrifað undir samning við Man. Utd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×