Formúla 1

Sebastian Vettel: Skylda mín að sigra

Sebastian Vettel undirritar fyrir áhorfendur ásamt öðrum Formúlu 1 ökumönnum á Silverstone.
Sebastian Vettel undirritar fyrir áhorfendur ásamt öðrum Formúlu 1 ökumönnum á Silverstone. Mynd: AFP

Möguleiki er á rigningu á Silverstone mótinu sem fer af stað í hádeginu, en Þjóðverjinn Sebastian er fremstu á ráslínu, en Rubens Barrichello við hlið hans. Forystumaður stigamótsins er sjötti, en það er Jenson Button. Lewis Hamilton sem vann mótið í fyrra er nítjándi.

Red Bull lið Vettels mætti með talsvert breyttan bíl á Silverstone og Button segir liðið fljótari en Brawn og gæti munurinn verið allt að hálf sekúnda í hring. Vettel er hæstánægður með breytingarnar, en nýr framvængur, endurbættur loftdreifir og vélarhlif eru meðal hluta sem bíllinn státar á lokamótinu á Silverstone.

"Það er mikil gleði í herbúðum Red Bull og gaman að vera í bílskýlinu og fylgjast með undirbúningnum. Músíkin er á fullu og menn vinna með bros á vor, menn eru eiginlega dansandi í vinnunni... Strákarnir hafa lagt mikla vinnu á sig og það skilar sér í góðum bíl. Það er eiginlega skylda mín að standa mig vel og skila sigri. Strákarnir eiga það skilið og það er gaman að fær þeim velgengni, eftir erfið ár hjá Red Bull. Núna er tími liðsins kominn", sagði Vettel.

Bein útsending frá mótinu á Silverstone hefst kl. 11:30 á Stöð 2 Sport og verður m.a. rætt við Ólaf Guðmundsson Formúlu 1 dómara um deilurnar FIA og FOTA í upphitun fyrir kappaksturinn.

Sjá brautarlýsingu og tölfræði






Fleiri fréttir

Sjá meira


×