Handbolti

Mikilvægur sigur hjá Hannover-Burgdorf

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hannes Jón Jónsson, númer 25.
Hannes Jón Jónsson, númer 25.
Hannover-Burgdorf vann í gær mikilvægan sigur á Dormagen, 28-26, í miklum fallslag í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Hannes Jón Jónsson komst ekki á blað í liði Hannover-Burgdorf, né heldur Andrius Stelmokas og Robertas Pauzolis sem báðir léku lengi hér á landi.

Hannover-Burgdorf er nú með fjögur stig í sextánda sæti deildarinnar en Dormagen í átjánda og neðsta sæti með tvö stig.

Þá var einnig leikið í dönsku úrvalsdeildinni í gær.

Gísli Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir Nordsjælland sem vann fimm marka sigur á FHK Elite, liði Björns Inga Friðþjóðfssonar markvarðar.

Nordsjælland er í áttunda sæti deildarinnar með átta stig og FHK Elite í ellefta sæti með fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×