Íslenski boltinn

Gunnleifur varði víti frá Sævari og HK vann á Selfossi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnleifur Gunnleifsson er kominn aftur í HK.
Gunnleifur Gunnleifsson er kominn aftur í HK. Mynd/Vilhelm

HK náði að minnka forskot Selfyssinga í sex stig eftir 2-1 sigur á Selfossi í toppslag 1. deild karla. HK komst einnig upp fyrir Hauka í 2. sætið með sigrinum en Haukaliðið á leik inni.

Hörður Magnússon skoraði sigurmark HK í seinni hálfleik eftir að Sævar Þór Gíslason hafði náð að jafna leikinn skömmu áður. Rúnar Már Sigurjónsson kom HK í 1-0 í fyrri hálfleik.

Landsliðsmarkvörður HK, Gunnleifur Gunnleifsson, varði vítaspyrnu frá markahæsta manni 1.deildar, Sævari Þór Gíslasyni, í stöðunni 0-0 í fyrri hálfleik.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×