Fótbolti

Zlatan: Ég vil fara frá Inter

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic, leikmaður Inter.
Zlatan Ibrahimovic, leikmaður Inter. Nordic Photos / AFP

Svíinn Zlatan Ibrahimovic segist gjarnan vilja reyna fyrir sér með öðru félagi en Inter á Ítalíu en hann er þó samningsbundinn félaginu til 2013.

Þetta sagði hann í samtali við Eurosport. „Ég er með samning við Inter og líður ágætlega hér. En um leið vil ég fá að prófa eitthvað nýtt því ég hef nú verið í fimm ár á Ítalíu."

„Ég hef unnið allt sem hægt er að vinna á Ítalíu og lært mikið af dvöl minni hér. En rétt eins og gerðist þegar ég var hjá Ajax þá kemur að því að maður vill fá að prófa eitthvað nýtt."

Þó er talið ólíklegt að Inter ætli ekki að leyfa Zlatan að fara ókeypis og er talið líklegt að það ætli að fara fram á 100 milljónir evra fyrir hann.

Inter er þar að auki nýbúið að missa annan framherja en fyrr í dag var það tilkynnt að félagið hefði rift samningi sínum við Brasilíumanninn Adriano.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×