Við eigum töluvert inni frá síðasta leik 23. janúar 2009 15:15 Friðrik Ragnarsson og félagar eiga harma að hefna gegn KR eftir tvö naum töp í vetur Mynd/Daníel "
Við erum fullir tilhlökkunar fyrir þennan risaleik og ég á ekki trú á öðru en að verði uppselt," sagði Friðrik Ragnarsson þjálfari Grindavíkur í samtali við Vísi í dag þegar hann var spurður út í stórslag KR og Grindavíkur í undanúrslitum bikarkeppninnar á morgun. KR og Grindavík hafa verið í algjörum sérflokki í deildinni í vetur. Liðin hafa mæst tvisvar sinnum, í Powerade-bikarnum og í deildinni, og þar hafði KR betur í bæði skiptin í æsilegum spennuleikjum. KR vann úrslitaleikinn í Powerade bikarnum með skoti Jason Dourisseau á lokasekúndunni í Laugardalshöll og vesturbæingar höfðu líka nauman tveggja stiga sigur í fyrri leik liðanna í deildinni sem fram fór í DHL-höllinni í Frostaskjóli. "Þetta verður háspennuleikur og mikil gæði. Bæði lið eru mjög vel mönnuð og það er alveg pottþétt að þetta verður vel spilaður og skemmtilegur leikur. Það er allt of mikið af hæfileikamönnum á gólfinu til að svo verði ekki," sagði Friðrik. Grindvíkingar hljóta að vera komnir með blóðbragð í munninn eftir tvö sár töp gegn þeim svarthvítu. "Við eigum töluvert inni frá þessum leik sem við töpuðum í deildinni. Þar var Arnar Freyr (Jónsson) í leikbanni og Helgi Jónas (Guðfinnsson) veikur, svo við vorum mjög laskaðir í leikstjórnandastöðunni. Nú eru þeir báðir klárir og svo bætist Nick Bradford við þetta hjá okkur," sagði Friðrik. Bradford, sem áður lék með Keflavík, hefur spilað tvo leiki með Grindavík síðan hann kom til landsins og er strax farinn að setja mark sitt á liðið. "Hann hjálpar okkur mikið með alhliðaleik sínum, ekki síst í varnarleiknum. Hann er mikill liðsspilari og ég sagði honum að mér væri alveg sama hvað hann skoraði mikið, ef hann bara hjálpar okkur að gera liðið betra. Hann er mikill töffari á velli," sagði Friðrik. Leikur KR og Grindavíkur hefst klukkan 16 á morgun og líklega er rétt að skora á fólk að mæta snemma því reikna má með troðfullu húsi á þennan stærsta leik vetrarins til þessa.
Dominos-deild karla Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira