Mourinho: Ég er enginn Harry Potter Ómar Þorgeirsson skrifar 10. júlí 2009 15:00 José Mourinho. Nordic photos/Getty images
Knattspyrnustjórinn litríki José Mourinho hjá Ítalíumeisturum Inter talar tæpitungulaust í viðtali við Gazzetta dello Sport í dag og viðurkennir að eins og staðan er í dag þá sé Inter ekki að fara að vinna Meistaradeildina á næstu leiktíð. Hann kvartar jafnframt yfir því að hafa of stóran leikmannahóp þegar undirbúningstímabilið sé að byrja. „Það er alls ekki jákvætt að vera með þrjátíu leikmenn í aðalliðinu. Hugmyndin var að fá fjóra nýja leikmenn inn í sumar og að við myndum losa okkur við átta leikmenn í staðinn en það hefur ekki gengið upp hingað til. Okkur vantar enn miðvörð og sóknarmiðjumann. Fjórir leikmenn hafa farið frá okkur, þar af þrír með lausan samning og einn á láni og við erum því ekki að fá neina peninga í kassann. Ég er ekki að gagnrýna forráðamenn félagsins því ég veit að þetta eru erfiðir tímar, efnahagslega séð. Það er þar að leiðandi áfram ákveðinn getumunur á okkur og bestu félögum Evrópu en þetta verður að duga eins og er. Við getum unnið áfram með þennan leikmannahóp en ég er enginn kraftaverkamaður. Ég er hvorki Merlin né Harry Potter," segir Mourinho í samtali við Gazzetta dello Sport.
Ítalski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Í beinni: KA - Víkingur | Á sama tíma að ári Íslenski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Í beinni: Crystal Palace - Man. Utd | Er United komið á rétta braut? Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Í beinni: KA - Víkingur | Á sama tíma að ári Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Ferguson saknar fótboltans Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik „Ætlum að taka bikarinn norður, það er bara staðan“ „Held að þetta verði mjög erfiður leikur“ Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Var kennari og þjálfaði karlalið þegar hann stýrði kvennalandsliðinu Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Segir að Saliba og Gabriel séu besta miðvarðapar í Evrópu Sjá meira