Fótbolti

Beckham: Kaka fer til Real Madrid

NordicPhotos/GettyImages

Spænska blaðið AS birti nokkuð áhugaverða frétt um hinn umtalaða miðjumann Kaka hjá AC Milan.

Blaðið hefur eftir heimildamanni sínum að Kaka hafi talað mikið við félaga sinn David Beckham hjá Milan um það hvernig sé að spila með Real Madrid á Spáni. Brasilíumaðurinn sé ákveðinn í að fara til Real í sumar.

"Kaka vill fara til Real Madrid en ekki Manchester City. Ég held að hann verði orðinn leikmaður Real í sumar," á Beckham að hafa sagt við ónefndan félaga sinn. "Ég held að einhver hafi sett sig í samband við hann og að hann sé þegar ákveðinn í að fara."

AS segir að Beckham hafi reynst nokkuð sannspár undanfarin ár, því hann á að hafa tippað á að félagi hans Ronaldo gengi í raðir AC Milan þegar þeir léku með Real á sínum tíma - og sú varð síðar raunin.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×