Fótbolti

Mike Dean á flautunni í kvöld

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Dean sýnir Hermanni Hreiðarssyni gult spjald.
Dean sýnir Hermanni Hreiðarssyni gult spjald. Nordicphotos/GettyImages

Englendingurinn góðkunni Mike Dean dæmir leik Íslands og Hollands á Laugardalsvellinum í kvöld.

Dean dæmir í ensku úrvalsdeildinni og hefur 24 ára langan dómaraferil á bakinu.

Hann hefur dæmt fyrir FIFA frá árinu 2003 og dæmdi hann meðal annars úrslitaleik FA bikarkeppninnar í fyrra.

Þess má geta að Kristinn Jakobsson dæmir hjá Englendingum, sem mæta Kazakstan klukkan 15.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×