Íslenski boltinn

FH og Breiðablik í úrslitin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Davíð Þór Viðarsson og félagar í FH eru komnir í úrslit Lengjubikarsins.
Davíð Þór Viðarsson og félagar í FH eru komnir í úrslit Lengjubikarsins.

Það verða FH og Breiðablik sem mætast í úrslitum Lengjubikars karla á föstudaginn kemur.

Undanúrslitin fóru fram í kvöld. FH vann 2-1 sigur á Fylki og þá vann Breiðablik sömuleiðis 2-1 sigur á HK í Kópavogsslag.

Varnarmennirnir Finnur Orri Margeirsson og Kristinn Jónsson skoruðu mörk Blika í kvöld en Finnur Ólafsson mark HK-inga.

Arnór Sveinn Aðalsteinsson, leikmaður Breiðabliks, fékk þó að líta beint rautt spjald undir lok leiksins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×